Explorer samanbrjótanlegur vagn
17.990 kr.
Explorer samanbrjótanlegi vagninn er einstaklega hentugur þegar þarf að flytja hluti á þægilegan hátt.
Hann hentar vel fyrir útilegur, íþróttamót, ferðalög, garðvinnu, viðburði, sumarbústaðaferðir eða einfaldlega þegar bera þarf innkaup, búnað eða annan farangur. Vagninn þolir allt að 100kg
Vagninn er með sterkbyggðri grind og rúmgóðu geymslurými úr slitsterku 100% polyester Oxford-efni. Hann fellur auðveldlega saman þegar hann er ekki í notkun og tekur því lítið pláss í geymslu eða bíl. Breið 8″ dekk gera hann stöðugan og þægilegan í notkun, jafnvel á ójöfnu undirlagi eins og grasi, möl eða tjaldsvæðum.





